18.1.2008 | 13:53
Ekkert hræðilegt...
Það er skrítin tilfinning að lesa þessa frétt því undir venjulegum kringumstæðum væri ég núna bölvandi útí eitt um að mótið væri búið og menn ættu að pakka saman og fara heim. Óli er búinn að vera einn besti handknattleiksmaður heims í mörg ár og burðarás í Íslenska liðinu og án hans er liðið 50% veikara en ella. En ég er á öðru máli í dag. Eins og ég talaði um í gær þá var Óli alveg hrikalega slakur í gær. Mér fannst hann hægja á öllu spili á liðinu sem gerði það að verkum að það varð einhvern veginn ekkert flæði í sóknarleiknum, já það er mjög asnalegt að skrifa þetta en mér fannst þetta í gær. Og menn eru alltof mikið að treysta á að Óli bjargi alltaf liðinu. Greinilega eru meiðslin hans að trufla hann því að hann er ekki uppá sitt besta, virkar seinn og kærulaus.
Ég held að þetta muni því virkar sem vítamínssprauta á allt liðið. Núna dugar ekki að treysta á einn mann, núna þarf liðið ALLT að spila saman og treysta á hvern annan. Einar Hólmgeirs, þó hann hefði verið hræðilegur í gær, er gríðarlega góð skytta á góðum degi og spilar með einu besta félagsliði heims. Hann þarf núna að stíga upp og njóta þess að spila mikið og þarf að nýta tækifærið og sýna úr hverju hann er gerður. Þetta mun því efla sjálfstraustið hans. Svo er maður alltaf að vona að Ásgeir muni springa út en mér finnst hann ennþá vera bara efnilegur. Það er erfitt að vera svona jákvæður eftir svona fréttir en ég bara vona að þetta eigi eftir að efla liðið og þetta gæti ekki komið á betri tíma. Hefði þetta gerst á HM í þýskalandi að Óli hefði meiðst hefðum við skitið á okkur enda með enga back up stráka þar...
Koma svo Ísland..
![]() |
Ólafur líklega ekki með í næstu tveimur leikjum á EM |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.